Skólastjóri Gerðaskóla
Húsnæði skólans er rúmgott og skólalóðin stór og skemmtileg til útivistar. Tónlistarskólinn er með aðstöðu í tónmenntastofu í skólanum og er frístundaskólinn einnig starfræktur innan veggja hans.
Nánari upplýsingar um skólann má einnig finna á heimasíðunni www.gerdaskoli.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans
- Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun
- Bera ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins
- Móta framtíðarstefnu skólans innan ramma laga og reglugerða í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla
- Stuðla að framförum, árangri, velferð og vellíðan nemenda og starfsfólks
- Vera í samvinnu við fræðsluyfirvöld í sveitarfélaginu um stefnumótun og ákvarðanatökur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara og farsæl kennslureynsla í grunnskóla
- Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða
- Farsæl reynsla af starfsmannastjórnun og þekking í áætlanagerð og fjármálastjórnun
- Leiðtogafærni, frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt
- Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti, á íslensku og ensku
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst næstkomandi. Umsóknarfrestur er til og með 16. apríl 2023.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Björg Sigurðardóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, gudrun@sudurnesjabaer.is eða í síma 425 3000.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir hæfni sinni í starfið. Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skilað á netfangið afgreidsla@sudurnesjabaer.is