Fara í efni

Sandgerðisskóli auglýsir eftir kennurum fyrir skólaárið 2023-2024.

Sandgerðisskóli auglýsir eftir kennurum fyrir skólaárið 2023-2024.

Sandgerðisskóli auglýsir eftir kennurum í eftirfarandi lausar stöður fyrir skólaárið 2023-2024.

  • Umsjónarkennari á miðstigi í 100% starf
  • Kennari í sjónlistum í 100% starf
  • Smíðakennari í 100% starf
  • Dönskukennari í 50% starf

Sandgerðisskóli leitar að  metnaðarfullum kennurum sem vilja ná góðum árangri í skólastarfi. Ráðið er í stöðurnar frá 1.ágúst 2023. Við leggjum áherslu á vellíðan og framfarir nemenda, gott samstarf innan skólans og við samfélagið. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að setja sig inn í starfshætti skólans, vinna í teymi að því að mæta ólíkum einstaklingum á faglegan, fjölbreyttan og skapandi hátt.

Sandgerðisskóli er vel búinn, heildstæður fjölmenningarlegur grunnskóli með um 315 nemendur og við skólann starfar samheldinn hópur metnaðarfullra starfsmanna. Áhersla er lögð á náið samstarf er við Leikskólann Sólborg, félagsmiðstöðina Skýjaborg og Tónlistarskóla Sandgerðis. Gildi skólans eru; vöxtur – virðing – vilji – vinátta.

Skólinn er heilsueflandi grunnskóli sem vinnur eftir stefnu Uppeldis til ábyrgðar með það að markmiði að allir fái tækifæri til að vera besta útgáfan af sjálfum sér í leik og starfi. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans,  www.sandgerdisskoli.is 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf kennara (fylgi með umsókn)
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla kostur
  • Metnaður og einlægur áhugi á að vinna með börnum og unglingum á faglegan, fjölbreyttan og skapandi hátt
  • Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi og metnaður fyrir góðum foreldrasamskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Skapandi hugsun og áhugi á að starfa í metnaðarfullu umhverfi.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði

Samkvæmt lögum um grunnskóla er skilyrði að umsækjendur hafi hreint sakavottorð.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félag grunnskólakennara

Ráðið er í öll störf óháð kyni og er umsóknarfrestur til 30. mars 2023. Umsóknir ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum skulu berast á netfangið bylgja@sandgerdisskoli.is .

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans www.sandgerdisskoli.is.  

Nánari upplýsingar um störfin veitir Bylgja Baldursdóttir, skólastjóri í síma 425 3100.