Fara í efni

Samstarf um þjónustu við fylgdarlaus börn

Samstarf um þjónustu við fylgdarlaus börn

Mennta-og barnamálaráðuneytið og Suðurnesjabær hafa gert með sér samstarfssamning varðandi þjónustu við fylgdarlaus börn sem koma til Íslands í leit að alþjóðlegri vernd. Þar sem Flugstöð Leifs Eiríkssonar er innan Suðurnesjabæjar tekur barnavernd sveitarfélagsins utan um börn sem koma til landsins með flugi og óska eftir alþjóðlegri vernd við komuna til landsins. Mikil aukning hefur verið á fjölda barna sem koma til landsins í þessum tilgangi og hefur Suðurnesjabær tekið utan um börnin og átt um það verkefni mjög gott samstarf við mennta-og barnamálaráðuneyti.

Samkvæmt samningnum mun velferðarsvið Suðurnesjabæjar annast það verkefni að halda utan um málefni fylgdarlausra barna og mun öðrum sveitarfélögum standa til boða þjónusta sveitarfélagsins og búsetuúrræði ef rými er til staðar.  Þannig geta önnur sveitarfélög mögulega flutt mál fylgdarlausra barna til Suðurnesjabæjar.

Fylgdarlaus börn á flótta eru almennt mjög viðkvæmur hópur og því mjög flókið að halda utan um þeirra mál.  Það er því ánægjulegt að mennta-og barnamálaráðuneytið hafi gert samstarfssamning við Suðurnesjabæ um þetta mikilvæga verkefni. Það staðfestir hve vel starfsfólk sveitarfélagsins hefur staðið að málefnum barnanna, haldið utan um þau af alúð og fagmennsku og veitt þeim traust skjól.

Magnús Stefánsson bæjarstjóri Suðurnesjabæjar og Ásmundur Einar Daðason mennta-og barnamálaráðherra undirrituðu samstarfssamninginn föstudaginn 5. janúar 2024.

Suðurnesjabær lýsir ánægju með samstarfssamninginn, sem byggir á góðu og traustu samstarfi við mennta-og barnamálaráðuneytið um þetta mikilvæga málefni.