Safnahelgi á Suðurnesjum 2021
Safnahelgi á Suðurnesjum 2021
12. október 2021
Safnahelgi á Suðurnesjum verður haldin næstu helgi, 16. og 17. október 2021.
Safnahelgin er samstarfsverkefni safna, setra og sýninga á Suðurnesjum sem opna dyrnar sínar fyrir íbúum og gestum svæðisins.
Safnahelgin í ár er uppfull af fjölbreyttum og skemmtilegum viðburðum um allan Reykjanesskagann fyrir alla fjöldskylduna. Tónleikar, sirkus, sögustund, sýningar, ratleikur, slökkvibílar, völva Suðurnesja, upplestur, ævintýraheimur hafsins, Skessan, ljósmyndasýningar og margt, margt fleira.
Inn á heimasíðu Safnahelgarinnar, safnahelgi.is, má nálgast upplýsingar um alla viðburði sem eru í boði.
Við hlökkum til að hitta ykkur á ferðinni um Suðurnesin um helgina.