Fara í efni

Ráðning leikskólastjóra við leikskólann Grænuborg

Ráðning leikskólastjóra við leikskólann Grænuborg

Arnbjörg Elsa Hannesdóttir er leikskólakennari að mennt og hefur starfað sem aðstoðarleikskólastjóri í leikskólanum Hjallatúni í Reykjanesbæ frá árinu 2015. Elsa útskrifaðist með B.Ed gráðu í leikskólakennarafræðum frá Háskóla Íslands árið 2006. Hún hefur starfað í leikskóla frá árinu 2002 og m.a. verið deildarstjóri, verkefnastjóri og aðstoðarleikskólastjóri. Hún hefur mikla reynslu af leikskólastarfi og hefur m.a. komið að stefnumótun og faglegri uppbyggingu leikskólastarfs.

Elsa ólst upp í Vogunum en hefur búið í Reykjanesbæ frá árinu 2001. Hún er gift Guðbergi Reynissyni og saman eiga þau fjögur börn.

Það er mikill fengur fyrir okkur í Suðurnesjabæ að fá Elsu til starfa við leikskólann Grænuborg og bjóðum við hana innilega velkomna.