Fara í efni

Ókeypis skyndihjálparnámskeið fyrir ungmenni á aldrinum 12-16 ára

Ókeypis skyndihjálparnámskeið fyrir ungmenni á aldrinum 12-16 ára

Bjargvættir - Viðnámsþróttur er ókeypis námskeið fyrir ungmenni á aldrinum 12–16 ára á Suðurnesjum.

Námskeiðið verður haldið í BS salnum, Strandgötu 17, 245 Suðurnesjabæ 9. og 29. apríl. Á námskeiðinu læra þátttakendur grunnatriði skyndihjálpar, hvernig bregðast má við óvæntum aðstæðum og fá þjálfun sem styrkir sjálfstraust og viðnámsþrótt til framtíðar. Námskeiðið er 4 klst með hléi. Þátttakendur þurfa að vera skráð áður en námskeiðið hefst og ekki er tekið við skráningum á staðnum. Ef námskeiðið er fullt er ekki hægt að bæta við fleiri þátttakendum.

Við hvetjum þátttakendur til að taka með sér nesti. Í lok námskeiðsins bjóðum við þátttakendum að svara nokkrum spurningum um upplifun þeirra af námskeiðinu. Spurningalistinn er nafnlaus og svör ekki rakin til einstaklinga.

Allar frekari upplýsingar í síma 570-4000 og á skrifstofa.sudurnes@redcross.is

Skráning:

9. apríl 2026 kl 16-20. Skráning á viðburð - Rauði krossinn á Íslandi

29. apríl 2026 kl 16-20. Skráning á viðburð - Rauði krossinn á Íslandi