Fara í efni

Nýtt umsóknarviðmót byggingarleyfa

Nýtt umsóknarviðmót byggingarleyfa

Suðurnesjabær hefur tekið í notkun nýtt og notendavænt umsóknarviðmót byggingarleyfa í samstarfi við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS).

Þetta er mikilvægt skref í þeirri vegferð að samræma og einfalda umsókn og útgáfu byggingarleyfa hjá öllum sveitarfélögum á landinu og stuðla að vandaðri mannvirkjagerð til framtíðar.

Með beinu aðgengi að reglulega uppfærðum gögnum um byggingarleyfisumsóknir og afgreiðslu þeirra fæst stórbætt yfirsýn yfir stöðu uppbyggingar á Íslandi.

Viðmótið, sem er aðgengilegt á byggingarleyfi.hms.is, einfaldar og samræmir ferlið við umsókn og útgáfu byggingarleyfa.

Nánari upplýsingar um verkefnið má finna í meðfylgjandi myndbandi.

Umsóknarferli

Aðgangur að umsóknarkerfinu er aðskilinn fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Ef þú skráir þig inn með þínum skilríkjum og velur fyrirtækisaðgang, vinnur þú í umsóknum þess. HMS staðfestir umboð þitt og forskráir umsóknir sem eru sendar til sveitarfélags til ákvörðunar.

Staðfesting aðkomu að framkvæmd

Eigandi og aðalhönnuður staðfesta aðkomu með því að smella á hlekk í tölvupósti og auðkenna sig með rafrænum skilríkjum. Ekki er hægt að senda umsóknina til byggingarfulltrúa fyrr en aðilar hafa staðfest aðkomu sína.

Sækja um fyrir hönd fyrirtækis

Prókúruhafi þarf að veita starfsfólki umboð til að fá aðgang að svæði fyrirtækis. Ef fyrirtæki er eigandi umsóknar þarf prókúruhafi eða umboðsaðili að staðfesta aðkomu þess.

Starfsfólk með umboð geta skoðað umsóknir á mínum síðum fyrirtækisins á Ísland.is. Hönnuðir og starfsmenn með umboð geta unnið í umsóknum sem fyrirtækið á. Umsókn birtist öðrum hönnuðum ef hún er stofnuð eða staðfest af hönnuði skráðum á svæði fyrirtækis.

Eftir staðfestingu einstaklingsaðgangs er ekki hægt að veita öðrum hönnuðum aðgang, en hægt er að færa ábyrgð á milli. Ef mannvirkiseigandi er fyrirtæki, hafa allir með umboð aðgang og geta staðfest aðkomu eiganda.

Ábendingar

Fyrirspurnir um einstök mál eða leyfisveitingu skal beina til viðkomandi sveitarfélags.

Athugasemdir við upplýsingar á vef HMS eða nýtt umsóknarviðmót byggingarleyfa er hægt að senda á www.stafraenbyggingarleyfi@hms.is

Leiðbeiningar fyrir viðmótið