Fara í efni

Nýtt íbúðahverfi og mikil uppbygging íbúðarhúsnæðis í Suðurnesjabæ.

Nýtt íbúðahverfi og mikil uppbygging íbúðarhúsnæðis í Suðurnesjabæ.

Framkvæmdir eru hafnar við uppbyggingu á nýju íbúðahverfi, Skerjahverfi í Sandgerði í Suðurnesjabæ. Magnús Stefánsson bæjarstjóri tók fyrstu skóflustungu í dag og hóf með því framkvæmdina. Eftir nýlegt útboð á verkinu hefur Suðurnesjabær samið við Ellert Skúlason ehf um framkvæmdina. Fyrr í vor lauk framkvæmdum við tengingu á fráveitu hverfisins við fráveitukerfi sveitarfélagsins og annaðist Tryggvi Einarsson jarðverktaki það verkefni.

Í deiliskipulagi Skerjahverfis er gert ráð fyrir blandaðri byggð einbýla, rað-og parhúsa og fjölbýlishúsa. Þar er því gert ráð fyrir uppbyggingu á íbúðum af ýmsum stærðum. Í deiliskipulagi hverfisins er gert ráð fyrir alls 136 íbúðum, þar af 33 íbúðum í fjölbýli og 103 íbúðum í sérbýli. Sérbýlisíbúðir skiptast í 35 íbúðir í raðhúsum, 27 íbúðir í keðjuhúsum, 18 íbúðir í parhúsum og 23 íbúðir í einbýlishúsum.

Deiliskipulag Skerjahverfis (kort)

Í fyrsta áfanga í uppbyggingu Skerjahverfis er gert ráð fyrir alls 64 íbúðum, þar af 33 íbúðum í fjölbýli, 9 íbúðum í keðjuhúsum og 23 íbúðum í raðhúsum. Stefnt er að því að fyrstu lóðum verði úthlutað til bygginga síðsumars eða í byrjun hausts 2021. Þegar hafa komið fyrirspurnir um nokkrar íbúðalóðir í hverfinu, þannig að gera má ráð fyrir að töluverð eftirspurn verði eftir íbúðalóðum í þessu nýja íbúðahverfi. Þess má geta að gert er ráð fyrir lóð til uppbyggingar á fjölbýlishúsi á vegum leigufélagsins Bjargs.

   

Myndir með fréttinni eru frá Páli Ketilssyni og Víkurfréttum.

Mikil uppbygging íbúðarhúsnæðis í Suðurnesjabæ.

Mikil eftirspurn er og hefur verið eftir íbúðalóðum í Suðurnesjabæ, bæði í Garði og Sandgerði og er nú svo komið að framboð af lausum lóðum er orðið takmarkað. Nú eru alls 64 íbúðir í byggingu í Suðurnesjabæ, þar af 27 í Sandgerði og 37 í Garði. Þar að auki hefur verið úthlutað lóðum fyrir alls 53 íbúðir í Suðurnesjabæ, en uppbygging þeirra er ekki hafin. Þar af eru alls lóðir fyrir 41 íbúð í Garði og 12 íbúðir í Sandgerði. Sveitarfélagið vinnur að því að auka framboð af lóðum fyrir íbúðir, nýtt Skerjahverfi er liður í því verkefni og auk þess stendur yfir skipulagsvinna til að auka lóðaframboð enn frekar til næstu missera og ára.