Neyðarheimili fyrir börn
Barnavernd Suðurnesjabæjar auglýsir eftir umsóknum frá fjölskyldum og/eða einstaklingum sem eru tilbúin til að veita börnum móttöku á einkaheimilum.
Barnaverndarþjónustur skulu hafa tiltæk úrræði til að veita börnum móttöku í bráðatilvikum til að tryggja öryggi þeirra, greina vanda eða til könnunar á aðstæðum þeirra sbr. 84.gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
Hlutverk
Neyðarheimili tekur á móti barni/börnum með stuttum fyrirvara til skemmri tíma, í allt að þrjá mánuði. Leitað er eftir fólki sem hefur áhuga á velferð barna og er tilbúið að taka á móti þeim með stuttum fyrirvara og mæta breytilegum þörfum þeirra. Mikilvægt er að skapa þeim öruggar aðstæður með hlýju og nærgætni.
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála veitir leyfi að undangenginni úttekt á heimilishögum af hálfu barnaverndarþjónustu.
Óskað er eftir áhugasömu fólki sem er tilbúið að taka barn/börn inn á heimili sitt til skemmri tíma. Um er að ræða gefandi starf þar sem fjölskyldur fá tækifæri til að hlúa að börnum sem hafa upplifað erfiðar aðstæður.
- Reynsla og þekking af börnum er æskileg.
- Aldurstakmark er 25 ára.
Áhugasamir hafi samband við:
Guðrún B. Sigurðardóttir, sviðsstjóri Velferðarsviðs
Sími: 425-3000
gudrun@sudurnesjabaer.is