Fara í efni

Námskeið fyrir aðstandendur einhverfra barna

Námskeið fyrir aðstandendur einhverfra barna

Velferðarnet Suðurnesja ásamt Einhverfusamtökunum standa fyrir viðburði mánudaginn 6. febrúar kl.17 – 19:30 sem er ætlaður aðstandendum einhverfra barna.

Á námskeiðinu verður rætt um einhverfu og ólíkar birtingarmyndir hennar.

Gengið er út frá því að einhverfa sé eðlilegur hluti af mannlegum fjölbreytileika og að lykillinn að góðri líðan felist frekar í því að aðlaga umhverfið að einstaklingnum en öfugt.

Fyrir hlé er grunnfræðsla um einhverfu og eftir hlé er sjónum beint að reynslu foreldra og aðstandenda og góðum ráðum til þeirra.

Námskeiðið er opið öllum og er ókeypis.

Námskeiðið er haldið á Bókasafni Reykjanesbæjar.

Markmiðið með viðburðinum er að:

  • Efla vitund og skilning um einhverfu í samfélaginu, sérstaklega á meðal aðstandenda einhverfra einstaklinga
  • Stuðla að myndun tengslanets og stuðnings hvert við annað
  • Stuðla að félagslegri virkni einhverfra einstaklinga

Viðburðurinn á Facebook: https://fb.me/e/3Vw1s95MM