Fara í efni

Malbikunarframkvæmdir fimmtudaginn 20. nóvember

Malbikunarframkvæmdir fimmtudaginn 20. nóvember

Fimmtudaginn 20. nóvember er áætlað að malbika um 2.970 m2 kafla á Garðskaga.

Gera má ráð fyrir að framkvæmdir standi yfir frá kl. 9:30 - 17:00.

Lokað verður fyrir alla umferð á þessum kafla meðan á framkvæmdum stendur.

Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem þetta veldur og eru hvattir til að fylgja þeim merkingum og leiðbeiningum sem uppi eru hverju sinni.

Skipulags- og umhverfissvið Suðurnesjabæjar.