Fara í efni

Lóðir til úthlutunar í Suðurnesjabæ

Lóðir til úthlutunar í Suðurnesjabæ

Suðurnesjabær auglýsir eftir umsóknum um lausar lóðir í Teiga- og Klapparhverfi í Garði.

Um er að ræða lóðir við Straumklöpp:

  • 4 íbúðareiningar í einbýlishúsum
  • 8 íbúðaeiningar í parhúsum
  • 9 íbúðaeiningar í raðhúsum

Áætlað er að lóðirnar verði byggingarhæfar 1. júní 2026

Um auglýsingu og úthlutun lóða gilda reglur um úthlutun lóða og úthlutunarskilmálar.

Ef fleiri en einn umsækjandi sækir um sömu lóð verður dregið um úthlutun.

  • Við úthlutun lóða undir einbýlishús skulu einstaklingar hafa forgang.
  • Parhúsalóðum verður úthlutað jafnt til lögaðila í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, sem og einstaklinga, ef um er að ræða sameiginlega umsókn um báðar íbúðir á lóðinni.
  • Umsóknir um raðhúsalóðir þurfa að vera frá lögaðilum í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð.

Hjón, sambýlisfólk eða starfsmenn lögaðila skoðast sem sami umsóknaraðili þegar sótt er um lóðir.

Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugátt Suðurnesjabæjar

Umsóknarfrestur er til og með 17.apríl 2026.

Jón Ben Einarsson
Skipulags- og byggingarfulltrúi Suðurnesjabæjar