Fara í efni

Ljóðasamkeppni Dagstjörnunar 2024

Ljóðasamkeppni Dagstjörnunar 2024

Hollvinafélag Unu Guðmundsdóttur í Garði hefur um árabil efnt til ljóðasamkeppni meðal grunnskólabarna. Keppnin ber nafnið Dagstjarnan, eftir fallegu blómunum, dagstjörnunni sem uxu svo vel í litla garðinum við húsið hennar Unu í Sjólyst.

Markmið stjórnar félagsins er að þátttaka í ljóðasamkeppninni verði aftur eins og fallegi lítli garðurinn hennar Unu þ.e.a.s. að ljóðin verði eins og ótal margar dagstjörnur við Sjólyst. Ljóðasamkeppnin er ætluð öllum íbúum sveitarfélagsins og bjóðum við sérstaklega öllum nemendum í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins velkomna til þátttöku. Ekki er sérstakt þema þetta árið og er því yrkisefni frjálst val höfunda. Dómnefnd mun fara yfir ljóðin og velja þau bestu. Verðlaun verða veitt á sumardaginn fyrsta þann 25. apríl nk.

Vinsamlegast sendið ljóðin í umslagi og nafn höfundar í öðru umslagi inni í því. Skila skal ljóðunum fyrir 22. apríl á bæjarskrifstofu Suðurnesjabæjar Sunnubraut 4, 250 Garði.

Stjórn Hollvinafélags Unu Guðmundsdóttur í Sjólyst