Fara í efni

Lestur og bókasöfn á tímum Covid

Lestur og bókasöfn á tímum Covid

Við hvetjum íbúa Suðurnesjabæjar til þess að nýta tímann til lesturs góðra bóka. Hægt er að nálgast bækur á almenningsbókasafni Suðurnesjabæjar í Sandgerði en í ljósi aðstæðna verður viðbótaropnun í formi bókalúgu í almenningsbókasafni Suðurnesjabæjar í Gerðaskóla.

Starfsmenn bókasafnanna gæta ítrustu varúðar við útlán bóka og er farið eftir leiðbeiningum almannavarna í þeim efnum. Þá gilda fjarlægðareglurnar og fjöldatakmarkanir á safninu í Sandgerði.

Við hvetjum íbúa til þess að fylgja okkur á facebook síðunni okkar en upplýsingar um nýjar bækur og viðburði birtast þar reglulega auk fróðleiks um höfunda og fleira áhugavert.

Þá er hægt að senda fyrirspurnir og pantanir á netfangið bokasafn@sudurnesjabaer.is. Einnig má hafa samband í síma 425 3110.

Bókasafn Suðurnesjabæjar í Sandgerði er opið:
  • Mánudaga 8.15-17.30
  • Þriðjudaga 8.15-16.00
  • Miðvikudaga 8.15-16.00
  • Fimmtudaga 8.15-17.30
  • Föstudaga 8.15-14.00
  • Laugardaga 10.00-14.00
 Rafbókasafn:

Starfsmenn bókasafns Suðurnesjabæjar í Sandgerði geta aðstoðað íbúa við nýta sér rafbókasafnið en sífellt fjölgar þeim valmöguleikum sem eru í boði þannig að hægt er að lesa bækur í spjaldtölvum.

 Bókasafn Suðurnesjabæjar í Gerðaskóla:

Bókasafnið í Garði er lokað vegna framkvæmda við Gerðaskóla en til að koma til móts við íbúa Suðurnesjabæjar og þá íbúa í Garði sem ekki geta nýtt sér þjónustu bókasafns Suðurnesjabæjar í Sandgerði verður hægt að nýta sér „bókalúgu“.  Hér er um að ræða tímabundnar aðgerðir í ljósi aðstæðna og eru íbúar beðnir um að virða sóttvarnarreglur.

Hægt er að hafa samband við bókavörð í síma 425 3060 eða á netfangið bokasafn@gerdaskoli.is eða á netfangið bokasafn@sudurnesjabaer.is. Bókavörður verður til staðar frá kl. 14.00 - 17.00 mánudaga til fimmtudaga og hægt að nálgast pantanir í anddyri bókasafnsins á milli kl. 15.00 - 17.00 á fyrrnefndum dögum eða í samráði við bókavörð.

Þá er einnig bent á skilakassa sem eru til staðar í báðum íþróttahúsum Suðurnesjabæjar þar sem allir íbúar geta skilað bókum. Allir íbúar Suðurnesjabæjar eiga rétt á bókasafnskorti og geta nýtt sér bækur í eigu Suðurnesjabæjar óháð staðsetningu á safni.

Kærar kveðjur með lestraráskorun til allra íbúa.

Starfsmenn bókasafnanna.