Fara í efni

Laust starf í Gerðaskóla

Laust starf í Gerðaskóla

Í Gerðaskóla eru um 250 nemendur. Við skólann starfa áhugsamir og metnaðarfullirstarfsmenn. Gildi skólans eru virðing, ábyrgð, árangur, ánægja. Í Gerðaskóla leggjum við áherslu á að skapa öruggt umhverfi þar sem öllum líður vel og allir læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu.


Gerðaskóli óskar eftir að ráða starfsmann í frístund sem er starfrækt frá því að skóla lýkur til kl. 16:15. Í frístund er leitast eftir að bjóða upp á spennandi viðfangsefni sem veita börnum útrás fyrir leik- og sköpunarþörf. Leiðarljós frístundaheimilis er að hver einstaklingur fái að njóta sín og þroskist í umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu.


Auglýst er eftir starfsmanni í 40% starf frá kl. 13:00 - 16:15. Umsóknir ásamt starfsferilskrá og kynningarbréfi sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið skulu berast á netfangið eva@gerdaskoli.is. Um framtíðarstarf er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.Ráðið er í öll störf óháð kyni.


Nánari upplýsingar um starfið veitir Eva Björk Sveinsdóttir skólastjóri í síma 425 3050