Lagning ljósleiðara í þéttbýli Suðurnesjabæjar
Míla í samstarfi við Suðurnesjabæ leggur ljósleiðara í þéttbýlum Suðurnesjabæjar á árinu 2025. Um er að ræða framkvæmdir í Sandgerði og Garði. Framkvæmdaáformin eru auglýst á heimasíðu Mílu á slóðinni: https://www.mila.is/framkvaemdaaaetlanir.
Framkvæmdin er styrkt með átaki stjórnvalda um að klára ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Suðurnesjabær var eitt þeirra sveitarfélaga sem fékk styrk til framkvæmda.
Áformað er að framkvæmdir hefjist í bæjarkjörnunum næsta vor en nánari upplýsingar um tímasetningar veitir Míla.
Óski fyrirtæki eftir samstarfi í framkvæmdum á einstaka svæðum skal beina slíkri fyrirspurn til Mílu með tölvupósti á netfangið mila@mila.is við fyrsta tækifæri og a.m.k. innan 30 daga frá birtingu tilkynningar þessar svo hægt sé að tryggja að hönnun verkefnis geri ráð fyrir samnýtingu lagnaleiða innan framkvæmdartímans.