Fara í efni

1.desember í Suðurnesjabæ

1.desember í Suðurnesjabæ

Jólaljósin verða tendruð á jólatrjám Suðurnesjabæjar þann 1. desember, á Fullveldisdaginn, líkt og hefð hefur skapast fyrir. Dagskrá verður í báðum byggðakjörnum, Garði og Sandgerði, þar sem boðið verður upp á notalega jólastemningu.

Yngstu nemendur grunnskólanna ásamt bæjarstjóra tendra ljósin á jólatrjánum og í kjölfarið verður boðið upp á skemmtidagskrá.

Dagskrá

Kl. 17.00 – Kveikt á jólatrénu við Vörðuna í Sandgerði

  • Tónlistaratriði frá Tónlistarskólanum í Sandgerði.

  • Jólasveinar mæta á svæðið, skemmta og gefa glaðning.

  • Heitt súkkulaði, piparkökur og mandarínur í umsjón Reynis/Víðis.

Kl. 18.00 – Kveikt á jólatrénu við Ráðhúsið í Garði

  • Tónlistaratriði frá Tónlistarskólanum í Garði.

  • Jólasveinar mæta á svæðið, skemmta og gefa glaðning.

  • Heitt súkkulaði, piparkökur og mandarínur í umsjón Reynis/Víðis.

Við hlökkum til að eiga notalega stund saman og hefja desember í Suðurnesjabæ!