1.desember í Suðurnesjabæ
Jólaljósin verða tendruð á jólatrjám Suðurnesjabæjar þann 1. desember, á Fullveldisdaginn, líkt og hefð hefur skapast fyrir. Dagskrá verður í báðum byggðakjörnum, Garði og Sandgerði, þar sem boðið verður upp á notalega jólastemningu.
Yngstu nemendur grunnskólanna ásamt bæjarstjóra tendra ljósin á jólatrjánum og í kjölfarið verður boðið upp á skemmtidagskrá.
Dagskrá
Kl. 17.00 – Kveikt á jólatrénu við Vörðuna í Sandgerði
-
Tónlistaratriði frá Tónlistarskólanum í Sandgerði.
-
Jólasveinar mæta á svæðið, skemmta og gefa glaðning.
-
Heitt súkkulaði, piparkökur og mandarínur í umsjón Reynis/Víðis.
Kl. 18.00 – Kveikt á jólatrénu við Ráðhúsið í Garði
-
Tónlistaratriði frá Tónlistarskólanum í Garði.
-
Jólasveinar mæta á svæðið, skemmta og gefa glaðning.
-
Heitt súkkulaði, piparkökur og mandarínur í umsjón Reynis/Víðis.
Við hlökkum til að eiga notalega stund saman og hefja desember í Suðurnesjabæ!