Fara í efni

Íslandsleikar - Allir með

Íslandsleikar - Allir með

Helgina 28.-29. mars fara fram Íslandsleikar Allir með í Reykjanesbæ.

Íslandsleikarnir er íþróttahátíð fyrir börn og ungmenni sem finna sig ekki í hefðbundnu íþróttastarfi og eru með fötlun og/eða stuðningsþarfir.

Á Íslandsleikunum er keppt í þremur íþróttagreinum; fótbolta, körfubolta og handbolta. Einnig verða opnar æfingar í þessum sömu greinum þar sem hægt verður að prófa þær.

Hægt er að skrá lið en einstaklingar geta líka skráð sig og verða þá settir í lið.

Leikarnir eru fyrir iðkendur á öllum aldri og munu keppendur koma úr öllum landshlutum til að taka þátt.

Gisting er í boði í skólastofum í Holtaskóla föstudags- og eða laugardagskvöld. Þá er einnig hádegis-, kvöld- og morgunverður í boði í gegnum leikana.

Skráning fer fram í gegnum Abler og má finna skráningarhlekkinn hér