Ís í tilefni Sumardagsins fyrsta
Ís í tilefni Sumardagsins fyrsta
21. apríl 2021
Á sumardaginn fyrsta mun ísbíllinn koma í heimsókn til okkar í Suðurnesjabæ og gefa ís í tilefni sumarkomunnar.
Ísbíllinn mun rúnta um götur Suðurnesjabæjar og fara sinn hefðbundna hring í hvoru hverfi fyrir sig:
- 11.30 – 16.00 í Garði
- 16.30 – 20.00 í Sandgerði
Ísinn er sérstaklega ætlaður unga fólkinu sem eðli málsins samkvæmt er á öllum aldri.
Hægt verður að velja um tvær ístegundir.
Við hvetjum íbúa til að njóta útiveru í tilefni dagsins og minnum á að enn er hægt að nýta sér ratleikjaappið frá Öskudeginum.
Virðum sóttvarnir og fjarlægðamörk – Höldum áfram að standa okkur vel !
Gleðilegt sumar!