Fara í efni

Íbúar hvattir til þess að fylgjast með loftgæðum

Íbúar hvattir til þess að fylgjast með loftgæðum

Íbúar eru hvattir til að fylgjast vel með öllum upplýsingum sem fram koma t.d. hjá Veðurstofunni varðandi hættu á að loftgæði skerðist vegna gasmengunar frá eldgosinu.

Ef sú staða kemur upp og viðvaranir koma um hættu á gasmengun eru einstaklingar hvattir til að dvelja innandyra og gæta þess að gluggar séu lokaðir. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir einstaklinga sem eru viðkvæmir fyrir loftmengun. Á vefnum loftgaedi.is má finna allar upplýsingar varðandi loftgæði og viðbrögð við loftmengun frá eldgosum.

Hér má nálgast gasdreifispá veðurstofu Íslands :  https://www.vedur.is/eldfjoll/eldgos-a-reykjanesi/gasmengun/