Fara í efni

Íbúafundir um sameiningarmál á Suðurnesjum

Íbúafundir um sameiningarmál á Suðurnesjum

Verkefnishópur um óformlegar sameiningarviðræður Sveitarfélagsins Voga, Suðurnesjabæjar og Reykjanesbæjar boðar til íbúafunda í því skyni að eiga samráð við íbúa varðandi mögulegar sameiningarviðræður sveitarfélaganna, m.a. til þess að fá fram framtíðarsýn íbúa.

Íbúafundur Suðurnesjabæjar fer fram þriðjudaginn 16.apríl kl. 20:00 til 22:00 í Samkomuhúsinu í Sandgerði.
 

Íbúar geta einnig tekið þátt í fundinum í gegnum fjarfundakerfi (Teams) en tengill á fundinn og frekari upplýsingar verða birtar á vefsvæðum og Facebook-síðu sveitarfélagsins um hádegi á fundardegi