Íblöndun súlfíts í heita vatnið á Suðurnesjum
Þann 27. janúar mun HS Orka ráðast í nauðsynlegt viðhald og viðgerð á búnaði sínum á Fitjum í Reykjanesbæ. Á meðan á viðhaldinu stendur mun HS Orka tímabundið blanda natríumsúlfíti í heita vatnið.
HS Orka afhendir HS Veitum heitt vatn á Fitjum til dreifingar til heimila og fyrirtækja í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Vogum.
Á meðan viðhaldinu stendur yfir eru líkur á að styrkur súrefnis í vatninu aukist og er tilgangur íblöndunarinnar að draga úr styrk súrefnis áður en vatni er dreift til notenda. Með þessari aðgerð er dregið úr líkum á að súrefni geti valdið tæringu í dreifikerfi hitaveitunnar og lagnakerfi húsa. Slík íblöndun er þekkt og rótgróin aðferð í hitaveitukerfum á Íslandi og hefur verið beitt í áratugi við sambærilegar aðstæður.
Í þeim styrk sem um ræðir á natríumsúlfíð ekki að hafa önnur áhrif en þau að tímabundið getur komið hveralykt af heita vatninu og íblöndunin er eingöngu gerð til varnar lagnakerfum. Styrkur efnisins er vaktaður af HS Orku til að tryggja að hann sé innan viðmiðunarmarka og að tilgangi íblöndunarinnar sé náð. Við hana mun styrkur súlfíts í heita vatninu aukast örlítið og því er fólki sem er viðkvæmt fyrir súlfíti í matvælum bent á að hafa í huga að heita vatnið er ekki ætlað til neyslu eða að það sé notað við matreiðslu.
Íblöndunin mun standa yfir þar til rekstrarskilyrði kerfisins eru komin í eðlilegt horf á ný. Áætlaður verktími er um þrír sólarhringar. Um er að ræða aðferð sem búast má við að notuð verði í framtíðinni þegar aðstæður krefjast.