Hjólabrettafjör
Hjólabrettafjör
23. september 2020
Hjólabrettasumrinu er lokið, en í ár var þriðja sumarið þar sem Sk8roots bauð upp á hjólabrettaæfingar í Sandgerði.
Hugo Hoffmeister þjálfari hópsins var ánægður með þátttöku og framstöðu krakkanna þetta sumarið og færði Suðurnesjabæ að gjöf myndaramma með myndum af flottum hjólabrettaköppum í Sandgerði.
Myndaramminn hefur verið hengdur upp í félagsmiðstöðinni Skýjaborg.
Suðurnesjabær þakkar Hugo og Sk8roots fyrir.