Heilsuvika í Suðurnesjabæ – hreyfing, samvera og vellíðan
Heilsuvika í Suðurnesjabæ fer fram 28. september–4. október og verður fjölbreytt dagskrá í boði alla vikuna. Við hvetjum íbúa á öllum aldri til að taka þátt og nýta tækifærið til að prófa eitthvað nýtt.
Frítt verður í sund, ræktina og hópatíma alla vikuna. Meðal þess sem verður í boði er línudans, göngubolti, badminton, þrek og teygjur. Börnum og ungmennum býðst jafnframt að prófa æfingar í fótbolta, handbolta, körfubolta og júdó auk þess verða opnir tímar í íþróttamannvirkjunum.
Á dagskránni verður einnig fjölskyldustund með Sóloni og Dimmu Dúsk, viðburðurinn „Í góðum félagsskap“ fyrir eldri borgara verður á sínum stað, sjósund í Bæjarskersfjöru og gönguferð frá Melabergi að Hvalsnesi. Félagsmiðstöðvarnar bjóða upp á fræðslu, hreyfingu og hollt og gott smakk. Einnig taka leik- og grunnskólar sveitarfélagsins þátt með íþróttadegi, fræðslu og fjölbreyttum viðburðum.
Kynnið ykkur dagskrána hér fyrir neðan og finnið eitthvað við ykkar hæfi.
Við hvetjum alla íbúa að taka virkan þátt í Heilsuviku Suðurnesjabæjar.