Heilsu- og forvarnavika 4.-10. október
Heilsu- og forvarnavika 4.-10. október
01. október 2021
Vikan 4. – 10. október er Heilsu- og forvarnarvika á Suðurnesjum. Fjölmörg fyrirtæki og stofnanir taka virkan þátt í verkefninu með því að bjóða upp á eitthvað heilsutengt þessa vikuna. Stefnt er að því að heilsu- og forvarnarvikan sé fjölbreytt, fræðandi og skemmtileg.
Dagskrá í Suðurnesjabæ
Mánudagur 4. október
- Líkamsrækt fyrir eldri borgara kl. 10:00 í íþróttamiðstöð Sandgerðis.
- Kántrýdans í Miðhúsum kl. 11:00
- Ganga með leiðsögumanninum Herði Gíslasyni. Gengið af stað frá íþróttamiðstöð Garðs kl. 11:00. Hreystihópurinn í Garði stendur fyrir göngunni en hann er gönguhópur eldri borgara sem gengur reglulega á mánudögum og fimmtudögum kl. 11:00 frá íþróttmiðstöðinni í Garði. Allir 60 ára og eldri eru velkomnir.
- Fyrirlestur: Björgvin Páll Gústafsson heimsækir Sandgerðisskóla með fyrirlesturinn Mín leið í boði Knattspyrnufélagsins Reynis.
- Hlaupakynningaræfing hjá Guðnýju og Berki kl. 16:30 í íþróttamiðstöð Garðs.
Þriðjudagur 5. október
- Stafganga frá Miðhúsum kl. 9:30
- Litahlaup. Grunnskólarnir taka þátt í skemmtilegu litahlaupi í lok skóladags.
- Líkamsrækt fyrir eldri borgara kl. 10:00 í íþróttamiðstöð Garðs.
-
Fyrirlestur um leiðtogafærni með Begga Ólafs fyrir 5-10. bekk í Gerðaskóla í boðí knattspyrnufélagsins Víðis.
Miðvikudagur 6. október
- Forvarnadagur forseta íslands í 9. bekk í báðum grunnskólum.
- Fyrirlestur með Þórdísi Marteinsdóttur um næringarþjálfun (macros) í Samkomuhúsinu í Sandgerði kl. 17:00. Allir velkomnir.
Fimmtudagur 7. október
- Líkamsrækt fyrir eldri borgara kl. 10:00 í íþróttamiðstöð Sandgerðis.
- Stafganga frá Miðhúsum kl. 9:30.
Föstudagur 8. október
- Líkamsrækt fyrir eldri borgara kl. 10:00 í íþróttamiðstöð Garðs.
Laugardagur/sunnudagur 9.-10. október.
- Spinning kl. 11:00 í íþróttamiðstöð Garðs.
Í gangi alla vikuna í íþróttamiðstöðvum
- 15 % afsláttur af mánaðarkortum í líkamsrækt.
- Vinavika, korthafar geta boðið vini frítt með í ræktina í heilsuvikunni.
Íbúar og starfsmenn Suðurnesjabæjar fá frítt í sund eins og aðra daga gegn framvísun korts.