Fara í efni

Heilsu- og forvarnarvika

Heilsu- og forvarnarvika

Vikuna 5. - 11. október næstkomandi verður haldin Heilsu- og forvarnarvika í Suðurnesjabæ.

Markmiðið með þeirri viku er að hlúa að verndandi heilsufarsþáttum með þátttöku allra bæjarbúa og draga úr þeim áhættuþáttum sem einstaklingar geta staðið frammi fyrir á lífsleiðinni.

Vonumst við til að sem flestir taki virkan þátt í verkefninu með því að bjóða íbúum upp á heilsutengda viðburði, þjónustu eða varning þessa vikuna.

Markmiðið er að heilsu-og forvarnarvikan sé fjölbreytt og höfði til sem flestra.

Stofnanir Suðurnesjabæjar taka þátt í verkefninu og er það von okkar að sem flest fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og íþrótta-og tómstundafélög sjái hag sinn í þátttöku verkefnisins.

Skila þarf upplýsingum/dagskrá fyrir 25. september nk. til að vera með í viðburðardagatalinu.

Til að skila inn efni er hægt að senda tölvupóst á rut@sudurnesjabaer.is