Hætta á gasmengun frá eldgosi
Hætta á gasmengun frá eldgosi
12. júní 2024
Íbúar Suðurnesjabæjar eru hvattir til að fylgjast með stöðu loftgæða í dag 12. júní og næstu daga þar sem hætta er á brennisteinsmengun frá eldstöðinni við Sundhnjúkagíga.
Nánari upplýsingar má finna á vef Veðurstofunnar um gasdreifispá: https://www.vedur.is/eldfjoll/eldgos-a-reykjanesi/gasmengun/
Á vef Umhverfisstofnunar loftgaedi.is má m.a. finna loftgæðamæla og ráðleggingar vegna loftmengunar.
Bent er á að ekki mæla allir loftgæðamælar á loftgaedi.is mengun frá gosstöðvunum, aðeins þeir mælar sem sýna SO2/brennisteinsdíoxíð.