Glæsilegur árangur iðkenda DansKompaní úr Suðurnesjabæ á Dance World Cup
Iðkendur úr Suðurnesjabæ tóku þátt í einstökum árangri DansKompaní á Dance World Cup, einu stærsta og virtasta dansmóti heims. Keppendur skólans sneru heim með alls níu heimsmeistaratitla, fjögur silfurverðlaun, fimm bronsverðlaun og fjölmörg sæti meðal tíu efstu. Auk þess hlaut DansKompaní fjóra eftirsótta Gala-titla sem veittir eru þeim atriðum sem þykja bera af sem „Best of the Best“ á mótinu.
Dance World Cup er eitt stærsta dansmót heims þar sem um 120.000 dansarar frá yfir 60 löndum taka þátt í forkeppnum ár hvert. Aðeins um 11.500 keppendur vinna sér sæti á úrslitamótinu sem í ár fór fram í Dublin á Írlandi. Sá árangur sem DansKompaní náði er því sannarlega einstakur og staðfestir hið öfluga og metnaðarfulla starf sem unnið er innan skólans.
Iðkendur úr Suðurnesbæ tóku þátt í þessu glæsilega afreki og lögðu sitt af mörkum til verðlaunanna. Það er sveitarfélaginu mikið gleðiefni að sjá unga íbúa sína skara fram úr á alþjóðlegum vettvangi og vera hluti af einu sterkasta dansliði heims!
Suðurnesjabær óskar öllum iðkendum, þjálfurum, danshöfundum, foreldrum og DansKompaní innilega til hamingju með þennan einstaka árangur. Þessi glæsilegi árangur er ekki aðeins skólanum til sóma heldur einnig öllu Suðurnesjasvæðinu og er skýr vitnisburður um það öfluga barna- og ungmennastarf sem þar er unnið.