Fara í efni

Gasmengun frá eldgosi – Gas pollution

Gasmengun frá eldgosi – Gas pollution

Íbúar eru hvattir til að fylgjast vel með öllum upplýsingum sem fram koma t.d. hjá Veðurstofunni varðandi hættu á að loftgæði skerðist vegna gasmengunar frá eldgosinu við Litla Hrút. Frá því eldgosið hófst hafa að mestu verið norðlægar vindáttir sem bera mengunina í suðurátt og út yfir haf. Hins vegar gæti sú staða komið upp á næstu dögum að austlægar eða suð-austlægar vindáttir beri gasmengun í vestur og norðvestur yfir Suðurnesjabæ. 

Ef sú staða kemur upp og viðvaranir koma um hættu á gasmengun eru einstaklingar hvattir til að dvelja innandyra og gæta þess að gluggar séu lokaðir. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir einstaklinga sem eru viðkvæmir fyrir loftmengun. Á vefnum loftgaedi.is má finna allar upplýsingar varðandi loftgæði og viðbrögð við loftmengun frá eldgosum.

Þess má geta að loftgæðamælir sem settur var upp í Sandgerði við fyrri eldgos hefur verið óvirkur, en vonir standa til að úr því verði bætt sem fyrst.  Loftgæðamælir í Garði er hins vegar virkur. Almenningur er hvattur til að fylgjast vel með fréttum og upplýsingum um þessi mál og fylgja leiðbeiningum sem því tengjast.

Gas pollution from the eruption area on Reykjanes Peninsula is forecasted.  Residents in Suðurnesjabær and in Suðurnes are encouraged to close windows and stay indoor if needed. The website loftgaedi.is has information about forecasts.

Hér er hlekkur á upplýsingabækling Almannavarna um hættu á heilsutjóni vegna loftmengunar frá eldgosi sem fólk er hvatt til að kynna sér.