Garðbraut - Malbikunarframkvæmdir 14. ágúst
Garðbraut - Malbikunarframkvæmdir 14. ágúst
13. ágúst 2025
Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir:
Fimmtudaginn 14. ágúst er stefnt á að malbika Garðbraut í norð-vesturátt. Kaflinn er um 1.400 m að lengd og verður honum lokað á meðan framkvæmdum stendur.
Hámarkshraði verður lækkaður og viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp skv. viðhengdri merkingaráætlun.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl.09:00 til kl. 18:00 fimmtudaginn 14. ágúst.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.
Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Ábyrgðarmaður veghaldara er Ólafur 845-0045 og ábyrgðarmaður verktaka er Ársæll 891-7446.