Fara í efni

Garðaúrgangur

Garðaúrgangur

Hægt er að losa sig við garðaúrgang á tveimur stöðum í Suðurnesjabæ, ofan við Háteig í Garði og ofan Byggðavegar í Sandgerði.

Mikilvægt að ekkert rusl eða aðskotahlutir fylgi svo að hægt sé að nýta úrganginn til fyllinga og uppgræðslu.

Hvor úrgangsflokkur er merktur með skiltum. Losa skal sem næst haug til að nýta sem best svæðið.

Íbúar eru beðnir um að ganga vel um losunarstaðina. Ruslatunnur eru á svæðunum sem hægt er að setja poka í eftir að gras og gróðurleifar hafa verið losuð, þó best sé að taka þá með aftur heim og endurnýta.

Við biðlum til fólks að huga að umhverfinu, flokka rétt og skila úrgangi á viðeigandi staði.

Fyrir förgun á öðrum úrgangi og rusli er íbúum bent á móttökustöð Kölku í Helguvík þar sem opnunartíminn er eftirfarandi:

  • Mánudagur – Föstudagur kl. 10:00-18:00
  • Laugardagur kl. 11:00-16:00
  • Sunnudagur - Lokað