Fyrirmyndarverkefni í Suðurnesjabæ
Við óskum eftir tilnefningum um fyrirmyndarverkefni í leik-, grunn-, tónlistarskóla eða frístundastarfi í Suðurnesjabæ.
Öll geta tilnefnt verkefni, einstakling eða viðburð sem hefur vakið athygli og er til fyrirmyndar á skólaárinu.
Veittar verða viðurkenningar fyrir þrjú fyrirmyndarverkefni á afmælisdegi Suðurnesjabæjar þann 10.júní við hátíðlega athöfn.
Dómnefnd er skipuð fulltrúum úr skólasamfélaginu utan sveitarfélags.
Með þessu viljum við vekja athygli á því gróskumikla starfi sem fram fer í stofnunum sveitarfélagsins ásamt því að efla og styrkja nýbreytni og þróun í starfi með börnum.
Mikilvægt er að hafa í huga að tilnefningar eigi við um verkefni sem unnin eru innan stofnana sveitarfélagsins og tengjast börnum og ungmennum.
Hægt er að senda inn tilnefningar til og með 15. maí.