Fara í efni

Fyrirmyndarverkefni í skóla- og frístundastarfi Suðurnesjabæjar heiðruð á afmælisdegi sveitarfélagsins

Fyrirmyndarverkefni í skóla- og frístundastarfi Suðurnesjabæjar heiðruð á afmælisdegi sveitarfélagsins

Þann 10. júní fór fram hátíðleg athöfn í Byggðasafni Suðurnesjabæjar þar sem veittar voru viðurkenningar fyrir Fyrirmyndarverkefni í skóla- og frístundastarfi Suðurnesjabæjar. Athöfnin var haldin í tengslum við átta ára afmæli sveitarfélagsins og var þetta annað árið í röð sem mennta- og tómstundasvið stendur fyrir viðurkenningunum.

Markmið viðburðarins er að vekja athygli á því öfluga og fjölbreytta starfi sem fram fer í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskólum og frístundastarfi sveitarfélagsins. Jafnframt er þeim ætlað að efla nýbreytni, fagmennsku og þróun í starfi með börnum og ungmennum og varpa ljósi á þau fjölbreyttu verkefni sem auðga skóla - og frístundastarf.

Alls bárust 16 tilnefningar um fyrirmyndarverkefni. Tilnefningarnar endurspegluðu þann kraft, sköpunargleði og metnað sem einkennir starfsemi stofnana sveitarfélagsins.

Óháð dómnefnd fór yfir allar tilnefningarnar. Dómnefndina skipuðu þau Fjalar Freyr Einarsson, Hrund Apríl Guðmundsdóttir og Íris Dögg Hugrúnardóttir Marteinsdóttir sem öll búa yfir fjölbreyttri reynslu og þekkingu á skóla- og frístundastarfi.

Viðurkenningar fyrir Fyrirmyndarverkefni Suðurnesjabæjar 2026 hlutu:

  • Bræðingur – samþættingarverkefni í Gerðaskóla sem byggir á nýbreytni, þverfaglegu samstarfi og hæfnimiðuðu námi.
  • Heilsufræði á miðstigi – samþættingarverkefni í Sandgerðisskóla sem tengir saman heilsueflingu, forvarnir og nám á skapandi og merkingarbæran hátt.
  • Velferðarverkefni Gerðaskóla – heildstætt verkefni sem leggur áherslu á vellíðan, sjálfsþekkingu og félags- og tilfinningafærni nemenda.

Glæsileg tónlistaratriði frá nemendum tónlistarskóla og frístundastarfs sveitarfélagsins lífguðu upp á viðburðinn. Eva Kristín Einarsdóttir söng og spilaði á gítar, kór eftirskólaúrræðis Gerðaskóla flutti tvö lög undir stjórn Alexanders Grybos sem einnig spilaði undir á gítar, og Kristín Hrefna Ásmundsdóttir lék á píanó. Við þökkum þeim öllum fyrir fallegan og eftirminnilegan flutning.

Mennta- og tómstundasvið Suðurnesjabæjar óskar öllum þeim sem hlutu viðurkenningar og tilnefningar innilega til hamingju.

Viðurkenningarnar minna okkur á að á bak við öflugt skóla- og frístundastarf stendur hugmyndaríkt og metnaðarfullt starfsfólk sem leggur sig fram á hverjum degi til að skapa börnum og ungmennum tækifæri til að vaxa, læra og dafna. Tilnefningarnar sýna glöggt þann metnað, frumkvæði og fagmennsku sem einkennir skóla- og frístundastarf í Suðurnesjabæ og það mikilvæga framlag sem starfsfólk veitir samfélaginu á hverjum degi.