Framkvæmdir á Garðskagavegi 29. júlí
Framkvæmdir á Garðskagavegi 29. júlí
28. júlí 2026
Vegagerðin hefur heimilað framkvæmdir á Garðskagavegi miðvikudaginn 29. júlí, ef veður leyfir.
Fræst verður vegriffla á milli Reykjanesbrautar og Heiðarbergs (8.0.54) frá kl. 09:00 til 13:00. Kaflinn er 1.040 m langur.
Á meðan framkvæmdum stendur verður Garðskagavegi lokað á milli Reykjanesbrautar og Heiðarbergs.
Athugið: Hringtorgið við Hringbraut/Miðnesheiðarveg verður opið. Hjáleið verður merkt um Miðnesheiðarveg og Sandgerðisveg.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Ábyrgðarmaður veghaldara er Hallvarður (s. 699-6450) og ábyrgðarmaður verktaka er Ársæll (s. 891-7446).