Fræsing og malbikun á Reykjanesbraut 27. maí.
Fræsing og malbikun á Reykjanesbraut 27. maí.
27. maí 2024
Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir:
Mánudaginn 27.maí er stefnt á að fræsa og malbika hægri akrein á Reykjanesbraut, á milli gatnamóta við Vogaveg og Grindavíkurveg. Kaflinn er um 2,5 km að lengd og hraði verður tekinn niður framhjá framkvæmdasvæði. Viðeigandi merkingar verða settar upp skv. viðhengdu lokunarplani.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 5:00 til kl. 21:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Ábyrgðarmaður veghaldara er Ólafur 845-0045 og ábyrgðarmaður verktaka er Halldór 660-1916.