Frábæru sumri lokið hjá Vinnuskólanum og sumarstörfum 17 ára og eldri í Suðurnesjabæ
Enn eitt viðburðaríkt sumar er að baki hjá Vinnuskólanum og sumarstörfum 17 ára og eldri í Suðurnesjabæ. Alls störfuðu um 200 ungmenni hjá sveitarfélaginu í sumar og lögðu sitt af mörkum við að fegra bæinn okkar.
Ungmennin sinntu fjölbreyttum verkefnum víðs vegar um sveitarfélagið. Þar má nefna slátt, garðyrkju, umhirðu opinna svæða, hreinsun, gróðursetningu og öðrum verkefnum sem stuðla að fallegra og gera umhverfi snyrtilegra. Á bak við vel hirt leiksvæði, blómabeð og göngustíga liggja ótal vinnustundir duglegra ungmenna sem hafa lagt sig fram af metnaði í sumar. Þrátt fyrir að júlí mánuður hafi boðið upp á meira en nóg af rigningu og vindasömu veðri lét þau það ekki á sig fá. Gulu vestin sáust víða um bæinn, hvort sem rigndi eða stytti upp og öll mættu til leiks með bros á vör. Veðrið reyndi vissulega á en góður starfsandi, samvinna og jákvætt hugarfar gerðu það að verkum að gleðin var sjaldan langt undan. Fyrir mörg ungmennanna voru þetta fyrstu kynni þeirra af vinnumarkaði. Í vinnuskólanum snýst sumarið ekki aðeins um verkefnin sjálf heldur einnig um að læra að bera ábyrgð, vinna með öðrum, mæta á réttum tíma og öðlast dýrmæta reynslu sem nýtist þeim þegar þau halda út á vinnumarkaðinn í framtíðinni. Það er ánægjulegt að sjá hversu mikinn metnað og dugnað ungmennin sýna og hvernig þau vaxa í hlutverkum sínum yfir sumarið.
Suðurnesjabær leggur ríka áherslu á að skapa ungmennum 17 ára og eldri tækifæri til atvinnu yfir sumartímann. Sumarstörfin veita mikilvæga starfsreynslu, efla sjálfstæði og ábyrgðarkennd og stuðla jafnframt að sterkari tengslum ungmenna við sitt nærumhverfi og samfélag.
Við viljum færa öllum þeim sem störfuðu hjá Suðurnesjabæ í sumar innilegar þakkir fyrir frábært framlag. Einnig viljum við þakka flokkstjórum, leiðbeinendum og öðru starfsfólki fyrir góða leiðsögn og stuðning sem gerði sumarið bæði lærdómsríkt og skemmtilegt.
Við óskum öllu sumarstarfsfólkinu velfarnaðar í komandi verkefnum, hvort sem það er í námi, starfi eða öðru sem haustið ber í skauti sér og hlökkum til að taka á móti nýjum hópi öflugra ungmenna næsta sumar!

