Fara í efni

Forsetakosningar laugardaginn 27. júní 2020

Forsetakosningar laugardaginn 27. júní 2020

Kjörskrá í Suðurnesjabæ vegna forsetakosninga sem fram fara þann 27. júní 2020, liggur frammi almenningi til sýnis í ráðhúsunum í Garði og Sandgerði frá 16. júní og fram að kjördegi.

Kjósendur eru kvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá.

Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar.

Kjörfundur fyrir kjósendur skráða í póstnúmerum 250 og 251  Garður er í Gerðaskóla.

Kjörfundur fyrir kjósendur skráða í póstnúmerum 245 og 246  Sandgerði er í Sandgerðisskóla.

Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.

 

Kjörstaðir opna kl. 09:00 og loka kl. 22:00.

Á kjördag mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur í Sandgerðisskóla sími 893 3730

 

Yfirkjörstjórn Suðurnesjabæjar