Fara í efni

Fasteignagjöld 2026

Fasteignagjöld 2026

Álagningu fasteignagjalda 2026 er lokið og eru álagningarseðlar fasteignagjalda 2026 nú aðgengilegir á www.island.is undir flipanum „Mínar síður

Fasteignamat

Álagning fasteignagjalda byggist á fasteignamati húss og lóðar í Suðurnesjabæ. Fasteignamat er framkvæmt af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun samkvæmt V. kafla laga um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001 https://www.althingi.is/lagas/nuna/2001006.html.

Gjalddagar fasteignagjalda eru tíu, sá fyrsti þann 1. febrúar 2026 og sá síðasti 1. nóvember 2026. Eindagi fasteignagjalda er 30 dögum eftir gjalddaga.

Breyting álagningar á íbúðarhúsnæði á milli ára

  • Fasteignaskattar á íbúðarhúsnæði lækka úr 0,28% í 0,23%.
  • Vatnsgjald lækkar úr 0,13% í 0,11%.
  • Fráveitugjald er 0,12% og breytist ekki á milli ára.
  • Lóðarleigugjald er 1,50% og breytist ekki á milli ára.
  • Sorpgjöld haldast óbreytt á milli ára.

Boðgreiðslur

Hægt er að greiða fasteignagjöld með boðgreiðslum sé þess óskað en nokkuð hagræði getur fylgt því að greiða reglubundnar greiðslur með kreditkorti. Þannig má spara fyrirhöfn bæði fyrir Suðurnesjabæ og greiðendur. Hægt er að senda póst með ósk um að greiða með boðgreiðslum á netfangið afgreidsla@sudurnesjabaer.is eða hringja í síma 425 3000. Í öryggisskyni minnum við á að gefa ekki upp kortanúmer í tölvupósti.

Afsláttur af fasteignaskatti

Elli- og örorkulífeyrisþegum sem eiga lögheimili í Suðurnesjabæ er veittur afsláttur af fasteignaskatti. Rétt til afsláttar eiga íbúðareigendur í sveitarfélaginu sem búa í eigin íbúð og eru 67 ára eða eldri eða hafa verið úrskurðaðir 75% öryrkjar fyrir 1. janúar 2026. Afsláttur nær einungis til þeirrar íbúðar sem viðkomandi býr í.

Veittur er afsláttur af fasteignaskatti miðað við heildartekjur viðkomandi, eftir reglum um afslætti og viðmiðunartekjur. Einstaklingar 67 ára og eldri fá afslátt frá og með næstu áramótum sem þeim aldri er náð.

Þeir sem eru á tekjubili milli neðangreindra fjárhæða tekna, fá hlutfallslegan afslátt miðað við viðmiðunartekjur:

Einstaklingar, heildartekjur:
Afsláttarmörk 2026:
neðri mörk: 5.733.372 kr. - efri mörk: 7.691.110 kr.
 
Hjón/sambúðarfólk, heildartekjur:
Afsláttarmörk 2026:
neðri mörk: 9.089.493 kr. - efri mörk: 12.235.857 kr.