Fara í efni

Ert þú með góða hugmynd að nafni á nýjan leikskóla?

Ert þú með góða hugmynd að nafni á nýjan leikskóla?

Á fundi bæjarráðs þann 13. september var ákveðið að leita í hugmyndabrunn íbúa og annarra áhugasamra að nafni fyrir nýjan leikskóla að Byggðavegi í Suðurnesjabæ.

Leikskólinn er byggður samkvæmt teikningum JeEs arkitekta og hófst hönnun hans árið 2019. Skólinn verður fullbyggður sex deilda. Byggingaframkvæmdir eru í fullum gangi og er áætlað að skólinn opni í mars á næsta ári ef allt gengur að óskum.

Suðurnesjabær hefur samið við Skólar ehf. um reksturinn sem starfar í anda Heilsustefnunnar sem kjarnast um heilsu og lífsgæði nemenda, starfsfólks og nærsamfélagsins.

Í sveitarfélaginu eru í dag tveir leikskólar Gefnarborg og Sólborg.

Hugmyndir að nafni á nýja leikskólann óskast sendar á Betri Suðurnesjabær í síðasta lagi 27. október 2023.