Fara í efni

Starfsfólk óskast í sumarafleysingar í íþróttamiðstöðvum Suðurnesjabæjar.

Starfsfólk óskast í sumarafleysingar í íþróttamiðstöðvum Suðurnesjabæjar.

Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, lokið námskeiði í skyndihjálp og standast sundpróf laugarvarða samkvæmt reglugerð um hollustuhætti á sund og baðstöðum.

Í starfi sundlaugarvarðar felst m.a:

  • Öryggisvarsla við sundlaug og sundlaugarsvæði
  • Klefavarsla/baðvarsla/gangavarsla/ rýmisvarsla
  • Afgreiðsla og önnur þjónusta við gesti
  • Þrif

Hæfniskröfur:

  • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum
  • Tölvukunnátta
  • Hreint sakavottorð

 Laun taka mið af starfsmati og kjarasamningum viðkomandi BSRB/ASÍ félaga við Samband íslenskra sveitarfélaga.

Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður Einar Karl Vilhjálmsson einarkarl@sudurnesjabaer.is

Umsóknarfrestur er til og með föstudeginum 14. maí 2021

Umsóknum ásamt ferilskrá skal skila á netfangið einarkarl@sudurnesjabaer.is