Rúnar Þór Sigurgeirsson valinn íþróttamaður Suðurnesjabæjar 2021
Rúnar Þór Sigurgeirsson valinn íþróttamaður Suðurnesjabæjar 2021
04. janúar 2022
Rúnar Þór Sigurgeirsson, knattspyrnumaður, var valinn íþróttamaður Suðurnesjabæjar 2021. Rúnar Þór hefur verið í lykilhlutverki hjá meistaraflokki Keflavíkur í knattspyrnu undafarin ár. Hann var valinn í A-lið íslenska landsliðsins á árinu 2021, en hefur áður spilað með U-21.
Rúnar Þór er framúrskarandi leikmaður í knattspyrnu og er Suðurnesjabæ til mikils sóma.
Við óskum honum áframhaldandi velferðar.
Afhending viðurkenninga fór fram í Ráðhúsinu í Sandgerði þann 4. janúar.
Eftirfarandi aðilar voru tilnefndir til íþróttamanns ársins og hlutu viðurkenningu fyrir góðan árangur árið 2021;
- Birgir Þór Kristinsson, akstursíþróttir
- Ástvaldur Ragnar Bjarnason, boccia
- Daníel Arnar Ragnarsson, taekwondo
- Rúnar Gissurarsson, knattspyrna
- Björn Aron Björnsson, knattspyrna
Suðurnesjabær óskar þessum frábæru íþróttamönnum innilega til hamingju með árangurinn og óskar þeim góðs gengis í framtíðinni.