Búið er að opna fyrir umsóknir í Menningarsjóð Suðurnesjabæjar
Umsækjendur eru beðnir um að kynna sér vel reglur sjóðsins og fylla út meðfylgjandi eyðublað þegar sótt er um í Menningarsjóðinn.
Ferða-, safna- og menningarráð mun fara yfir umsóknir sem berast og úthluta styrkjum eftir mat á umsóknum.
Þá er vert að minna á 2. gr. í reglum um sjóðinn en þar segir m.a.:
Tilgangur sjóðsins er að styðja við menningarstarfsemi í Suðurnesjabæ sem og styrkja einstaklinga, félagasamtök, hópa og stofnanir til lista- og menningarsköpunar í sveitarfélaginu. Til að hljóta styrk úr sjóðnum verða umsækjendur, s.s. listamenn, félagasamtök, hópar, stofnanir eða menningarviðburðir að tengjast Suðurnesjabæ á einhvern hátt. Þá þurfa þeir sem eru í forsvari fyrir umsókn að vera með fasta búsetu í Suðurnesjabæ og viðburðir, ef svo ber við, sem sótt er um fyrir að fara fram í Suðurnesjabæ.
Ferða-, safna- og menningarráð Suðurnesjabæjar hvetur áhugasama einstaklinga til þess að kynna sér sjóðinn og taka þátt í að byggja upp áframhaldandi menningarstarfsemi í Suðurnesjabæ.