Fara í efni

Breytingar á flokkun úrgangs

Breytingar á flokkun úrgangs

Breytingar á flokkun úrgangs – hvað þarf ég að gera?

Í upphafi árs tóku gildi ný lög um meðhöndlun úrgangs á Íslandi. Í þeim er kveðið á um að flokka eigi í fjóra flokka við hvert heimili og fleiri flokka á grenndarstöðvum.

Hvað þýðir þetta fyrir hinn almenna íbúa á Suðurnesjum?

Mismunandi útfærslur á tunnum

Í sérbýlum verða þrjár tunnur við hvert heimili en í fjölbýlum verða mismunandi útfærslum eftir aðstæðum á hverjum stað fyrir sig. Meginmarkmiðið verður þó að fjölga tunnum ein lítið og hægt er. Íbúar þurfa ekki að panta nýjar tunnur fyrir utan heimili sín en gera þarf ráð fyrir auknum fjölda tunna og því gott að huga að því í tíma. Breytingarnar kalla einnig á nýja flokkunarsiði inni á heimilum og því þarf að huga að því hvernig flokkunum verði komið fyrir.

fulikarlinn

 

 

 

 

 

 

Söfnun á lífrænum eldhúsúrgangi

Helsta breytingin er sú að nú hefst söfnun á matarleifum á Suðurnesjum og munu öll heimili fá körfu og bréfpoka til þess að safna þeim í eldhúsinu hjá sér. Allur lífræni eldhúsúrgangurinn sem mun safnast fer svo í gas- og jarðgerðarstöðina GAJU þar sem honum verður umbreytt í metangas og jarðvegsbæti (moltu).Mikilvægt er að notaðir séu bréfpokar undir þennan úrgangsflokk þar sem þeir jarðgerast mun betur en aðrar tegundir poka sem prófaðir hafa verið.

vondlykt

Pappi / pappír og plast verður aðskilið

Önnur breyting er sú að nú verður pappi / pappír aðskilinn frá plastinu og þessum flokkum safnað í sitthvora tunnuna. Þegar breytingin hefur tekið gildi verður einnig óheimilt að setja málma í endurvinnslutunnurnar við heimili en tekið er á móti málmum á grenndarstöðvum sem má finna víðs vegar um Suðurnes.

pappirogplast

 

Tvískipt tunna fyrir matarleifar og blandaðan úrgang

Tvískiptar tunnur verða við sérbýli þar sem matarleifum verður safnað í hluta tunnunnar og blönduðum úrgangi í hinn hlutann.

Við fjölbýli eru nokkrar útfærslur en ein þeirra er að matarleifum verður safnað í minni tunnu.

 tviskipttunna

 

Hvað verður um gömlu tunnurnar mínar?

Tunnurnar sem eru til staðar í dag verða nýttar áfram og mun önnur þeirra verða nýtt undir pappír & pappa og hin verður fyrir plast.

 gamlatunnan

Merkingar

Allar tunnur verða merktar með samræmdum merkingum frá FENÚR og mun því litur tunnunnar ekki skipta máli – það eina sem skiptir máli verður merkingin á tunnunni.

Hvað má fara í tunnuna?

Mikilvægt er að flokka rétt í tunnurnar til þess að skemma ekki endurvinnsluefnin sem verið er að safna. Betra er því að vanflokka en rangflokka til þess að tryggja gæðin á endurvinnsluefnunum.

Íbúar eru einnig hvattir til að nýta sér leitarvélina inná vefnum www.flokkum.is en þar er hægt að slá inn úrgangsefni og sjá í hvaða flokk hann á að fara og verða þannig enn betri í að flokka.

 

Í tunnu fyrir matarleifar fer meðal annars:

  • Eggjaskurn
  • Matarleifar, með og án beins
  • Kaffikorgur
  • Fiskiúrgangur
  • Ávaxta- og grænmetisafskurður
matarleifar

 

Í tunnu fyrir plastumbúðir fer meðal annars:

  • Snakkpokar
  • Plastfilma
  • Plastpokar
  • Sjampóbrúsar
 plastumbudir

 

Í tunnu fyrir pappír og pappa fer meðal annars:

  • Dagblöð
  • Bréfpokar
  • Pítsakassar
  • Pappírsumbúðir
 pappirogpappi
 

Í tunnu fyrir blandaðan úrgang fer meðal annars:

  • Dömubindi
  • Blautklútar
  • Bleyjur
  • Ryksugupoka
 pappirogplast

Grenndarstöðvar

Grenndarstöðvar verða áfram nýttar og mikilvægt er að fara með þangað þá úrgangsflokka sem ekki er safnað við heimilin. Þeir úrgangsflokkar sem safnað verður á grenndarstöðvum eru málmar, gler og textíll en þetta eru mikilvægir úrgangsstraumar sem ekki eiga heima í tunnunni með blönduðum úrgangi.

Grenndarstöðvar í Suðurnesjabæ eru staðsettar við Strandötu 17, Sandgerði og Gerðaveg 11, Garði.

gvendur