Fara í efni

Aukið umferðaröryggi

Aukið umferðaröryggi

Suðurnesjabær vinnur nú að umferðaröryggisáætlun fyrir sveitarfélagið. Markmið hennar að búa til aðgerðaráætlun svo auka megi öryggi í sveitarfélaginu, fækka slysum og auka lífsgæði íbúa sem og annarra sem um sveitarfélagið ferðast.

Mikilvægur grundvöllur vinnunnar er að kortleggja hætturnar í umferðinni. Kortlagningin hættustaða mun ekki bara byggja á hvar slysin hafa átt sér stað heldur einnig taka mið af mikilvægri upplifun íbúa á varasömum stöðum og mögulegum hindrunum í gatna- og stígakerfinu.

Því hefur sveitarfélagið ákveðið að efna til stafræns íbúasamráðs þar sem öllum íbúum gefst tækifæri á að koma sínum ábendingum áleiðis. Við viljum fá ábendingar ykkar varðandi hættustaði sem þið upplifið í umferðinni ásamt kortlagningu á staðsetningu þeirra.

Sérstök ábendingagátt verður opin til 3. október nk. Í gegnum eftirfarandi hlekk https://arcg.is/1eOrKX1

Eða meðfylgjandi QR kóðann

Láttu í þér heyra því þú þekkir þitt nærumhverfi best!