Auglýsing um skipulagsmál í Suðurnesjabæ
Aðalskipulag Suðurnesjabæjar - Breyting á íbúðasvæði ÍB-10 og OP-2, Skerjahverfi
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samþykkti 4. mars 2026 að auglýsa tillögu að óverulegri breytingu á aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Um er að ræða breytingu á þéttbýlisuppdrætti Sandgerðis, á skipulagsákvæðum og stærðarbreytingar á svæðum. Ekki er um að ræða breytingar á stefnumörkun aðalskipulagsins í neinum málaflokkum.
Aðalskipulagsbreytingin er unnin í tengslum við deiliskipulagsbreytingu fyrir íbúðarsvæði sem er í uppbyggingu. Tilgangurinn með breytingunni er að mæta þörf á fleiri íbúðum en gildandi aðalskipulag heimilar, með því að stækka íbúðarsvæði lítillega. Með breytingunni eykst íbúðafjöldi og er þar með brugðist við aukinni þörf á fjölbýli þannig að svigrúm verði fyrir hærra hlutfall fjölbýlis á kostnað sérbýlis.
Tillagan er aðgengileg á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, mál nr. 503/2026
Íbúðasvæði sunnan Sandgerðisvegar, Skerjahverfi – Tillaga að breytingu á deiliskipulagi
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samþykkti á fundi sínum þann 8. apríl 2026, í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Skerjahverfis (áður Íbúðasvæði sunnan Sandgerðisvegar). Með breytingunni er lögð áhersla á fjölgun minni íbúða í raðhúsum og fjölbýli, á kostnað einbýlishúsa og stærri raðhúsaíbúða. Með því hyggst sveitarfélagið koma betur til móts við óskir og þarfir á íbúðamarkaði.
Mörk skipulagssvæðis verða stækkuð til austurs og íbúðum fjölgað. Sjá svæðið auðkennt ÍB-10 og OP-2 í Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034.
Tillagan er aðgengileg á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, mál nr. 505/2026
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á https://skipulagsgatt.is/
Umsagnarfrestur er til og með 10. júní 2026.
Jón Ben. Einarsson,
Skipulagsfulltrúi Suðurnesjabæjar