Fara í efni

Auglýsing um skipulagsmál í Suðurnesjabæ

Auglýsing um skipulagsmál í Suðurnesjabæ

Gauksstaðir – Tillaga að deiliskipulagi

Bæjarráð Suðurnesjabæjar samþykkti á fundi sínum þann 11. mars 2024, í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að auglýsa deiliskipulagstillögu á jörð Gauksstaða, L196408, fyrir ferðaþjónustu. Í tillögunni felst að fyrirhugað er að útbúa gistirými fyrir allt að 50 manns í 15 ferðaþjónustuhúsum auk þjónustubyggingar. Sjá svæðið auðkennt VÞ6 í Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034.

Um er að ræða endurtekna málsmeðferð, þar sem fyrir liggur úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, mál nr. 158/2025, um deiliskipulag Gauksstaða (L196408). Málið varðar ákvörðun bæjarráðs Suðurnesjabæjar frá 25. júní 2025 um að samþykkja deiliskipulagið. Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar er að ákvörðun bæjarráðs er felld úr gildi. Til grundvallar niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar er það mat hennar að Suðurnesjabæ hafi borið að auglýsa tillöguna á nýjan leik samkvæmt 4. mgr. 41. gr. skipulagslaga með vísan til að gerðar voru úrbætur á umhverfismati skipulagsins eftir að umsagnartíma lauk og því er tillagan hér með auglýst og kynnt á nýjan leik.

Tillagan er aðgengileg á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, mál nr. 309/2026 þar sem einnig er vísað í tengd mál úr fyrri málsmeðferð og umsagnir.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tilllögunar í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á https://skipulagsgatt.is/

Umsagnarfrestur er til og með 27. apríl 2026.

Jón Ben. Einarsson,

Skipulagsfulltrúi Suðurnesjabæjar