Auglýsing um skipulagsmál í Suðurnesjabæ
Tillaga að deiliskipulagi Bala, Stafnesi
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samþykkti á fundi sínum þann 14. janúar 2026, að auglýsa og kynna tillögu deiliskipulagi við Bala, Stafnesi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagssvæðið er u.þ.b. 10 ha. Að stærð. Í deiliskipulagstillögunni, dags. desember 2025 felst að á 3,5 ha. svæði er gert ráð fyrir 8 frístundalóðum, þar sem heimilt er að reisa þrjú hús á hverri lóð. Hámarks byggingarmagn á lóð er 300 m2. Hámarksstærð húsa á hverri lóð má vera allt að eitt hús allt að 170 m2 og allt að tvö gestahús 65 m2 hvert. Sjá svæði auðkennt L3 og F2 í Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034.
Tillagan er aðgengileg á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, mál nr. 283/2026.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á https://skipulagsgatt.is/
Umsagnarfrestur er til og með 27. apríl 2026.
Jón Ben. Einarsson,
Skipulagsfulltrúi Suðurnesjabæjar