Fara í efni

Auglýsing um skipulagsmál í Suðurnesjabæ

Auglýsing um skipulagsmál í Suðurnesjabæ

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi efri hluta íbúðasvæðis ofan Garðvangs – Teiga- og Klapparhverfi

Um er að ræða endurtekna málsmeðferð þar sem gera þurfti óverulega aðalskipulagsbreytingu á íbúðagerðum ÍB9 sem voru ekki í samræmi við áður auglýsta deiliskipulagstillögu. Fyrirhuguð íbúðauppbygging er breytt lítillega frá fyrri málsmeðferð og lóð undir leikskóla fest í sessi.

Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samþykkti á fundi sínum þann 14. janúar 2026, að auglýsa og kynna á ný breytingu á deiliskipulagi efri hluta íbúðasvæðis ofan Garðvangs, Teiga- og Klapparhverfi í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Í deiliskipulagstillögunni, dags. 14. janúar 2022 með dagsettum breytingum til og með 15. desember 2025, felst endurskoðun á efri hluta íbúðasvæðisins með það markmið að mæta þörf fyrir minni og hagkvæmari íbúðir. Í breyttri deiliskipulagstillögu af þessum hluta hverfisins er gert ráð fyrir alls 262 íbúðum í 85 húsum sem er fjölgun um 121 íbúð frá áður samþykktu skipulagi. Einnig er gert er ráð fyrir lóð undir nýjan leikskóla innan svæðisins. Sjá svæði auðkennt ÍB9 og S25 í Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022 - 2034.

Tillagan er aðgengileg á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, mál nr. 167/2026 þar sem einnig er vísað í tengd mál úr fyrri málsmeðferð og umsagnir.

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi ofan Skagabrautar og Búmannasvæði

Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samþykkti á fundi sínum þann 7. október 2025, að auglýsa og kynna breytingu á deiliskipulagi „Ofan Skagabrautar“ í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Helstu breytingar eru þær að við Þrastarland og Kríuland koma 7 parhús á einni hæð í stað 14 keðjuhúsa. Íbúðafjöldi breytist ekki. Lega götunar Kríulands breytist lítillega vegna leiksvæðis og umferðaröryggis. Skipulagssvæðið liggur meðfram Skagabraut í Garði og er í samræmi við íbúðasvæði ÍB11 í Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034.

Tillagan er aðgengileg á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, mál nr. 171/2026

Tillaga að deiliskipulagi við Sandgerðiskirkju, tjaldsvæði og ferðaþjónustu

Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samþykkti á fundi sínum þann 5. nóvember 2025, að auglýsa og kynna tillögu deiliskipulagi við Sandgerðiskirkju, tjaldsvæði og ferðaþjónustu í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Með nýju deiliskipulagi verða núverandi lóðir fyrir Sandgerðiskirkju og safnaðarheimili annars vegar (Hlíðargata 9 ) og ferðaþjónustu hins vegar (Byggðavegur 3) stækkaðar, samtímis sem ný lóð (Byggðavegur 1) verður afmörkuð fyrir tjaldsvæðið. Á lóð Sandgerðiskirkju er gert ráð fyrir nýjum bílastæðum og bættri aðkomu fyrir hreyfihamlaða. Á lóð fyrir ferðaþjónustu er gert ráð fyrir heimild til að reisa 10 ný smáhýsi/svefnskála auk byggingar fyrir hreinlætisaðstöðu, til viðbótar við þær byggingar sem fyrir eru á lóðinni. Einnig er aðkomuvegur að ferðaþjónustulóð, sem lagður hefur verið í samræmi við gildandi mæliblað færður inn á deiliskipulagsuppdrátt. Gert er ráð fyrir að aðstaða til leikja verði fest í sessi á svæðinu.

Tillagan er aðgengileg á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, mál nr. 170/2026

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögunnar í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á https://skipulagsgatt.is/

Umsagnarfrestur er til og með 31. mars 2026.

Jón Ben. Einarsson,

Skipulagsfulltrúi Suðurnesjabæjar