Fara í efni

Ástvaldur Ragnar íþróttamaður Suðurnesjabæjar fyrir árið 2023

Ástvaldur Ragnar íþróttamaður Suðurnesjabæjar fyrir árið 2023

Tilkynnt var um val á íþróttamanni Suðurnesjabæjar við hátíðlega athöfn í Vörðunni í Sandgerði fimmtudaginn 11. janúar. Við tilefnið var boðið uppá veitingar og tónlistaratriði frá báðum Tónlistarskólum bæjarins. 

Ástvaldur Ragnar Bjarnason var kjörin íþróttamaður Suðurnesjabæjar árið 2023 en í umsögn kom m.a. fram að Ástvaldur hefur verið góð fyrirmynd fyrir iðkendur NES. Hann mætir á allar æfingar, er jákvæður og hefur tekið miklum framförum sem hefur leitt til þess að hann var valinn í landsliðshóp í Boccia hjá Íþróttafélagi fatlaðra. Ástvaldur hreppti annað sætið á Íslandsmótinu í sveitakeppni í Bocca og annað sætið í Íslandsmótinu í einliðaleik. Á erlendri grundu fór Ástvaldur í landsliðverkefni til Danmerkur. Þar tók hann þátt í Norðurlandamóti í Sveitakeppni þar sem hann stóð uppi sem sigurvegari ásamt sinni sveit og er því Norðurlandameistari í sveitakeppni árið 2023. Ástvaldur hreppti Hvatabikarinn hjá NES en hann er veittur þeim sem hafa skarað fram úr og eru hvatning fyrir aðra iðkendur.

Ástvaldur Ragnar er virkilega flott fyrirmynd og sýnir og sannar að með metnaði og elju eru allir vegir færir.

Eftirfarandi íþróttamenn hlutu einnig tilnefningu og  viðurkenningu fyrir góðan árangur árið 2023.     

  • Daníel Arnar Ragnarsson Viborg     
  • Kristófer Páll Viðarsson        
  • Joaquin Ketlun Sinigala        
  • Sigurður Guðmundsson